1. sunnudagur í níuviknaföstu, 13. febrúar 2022:

Guðsþjónusta og barnastarf kl. 13:00.  Séra Sigurður Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar.  Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni og Viktoría Ásgeirsdóttir annast samverustund sunnudagaskólans.  Kór Áskirkju syngur.  Orgelleikari Bjartur Logi Guðnason.

Að guðsþjónustu lokinni verða fermingarbörnum vorsins færðar að gjöf Biblíur frá Safnaðarfélagi Áskirkju.

Einnig selur Safnaðarfélagið kaffi og vöfflur í Ási, efri safnaðarsal kirkjunnar, til styrktar starfi félagsins.  Verð kr. 1.000.