Messur & safnaðarstarf

 

Vetrardagskrá Áskirkju

Messur
Messur og sunnudagaskólinn eru alla sunnudaga kl. 13. Jafnan er boðið upp á kaffi að lokinni messu.

Sunnudagaskólinn
hefst samtímis messunni kl. 13 og er alla sunnudaga yfir vetrartímann.
Í sunnudagaskólanum fer fram skírnarfræðsla sem byggir á viðurkenndu fræðsluefni fyrir börn frá fræðsludeild Þjóðkirkjunnar. Leiðtogar sunnudagaskólans annast fræðsluna sem er í ýmsu formi; söng, brúðuleikhúsi, myndasögum, biblíusögum og ævintýrum, tuskudýrin fá knús, börnin læra bænir, föndra og fá hressingu í lokin.

Fermingarfræðslan er á miðvikudögum frá hausti til vors kl. 15: (hópur I) og kl. 16:15 (hópur II) í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar.

Kyrrðarstundir
eru kl. 11:30 alla fimmtudaga. Í upphafi stundar leikur organisti kirkjunnar á orgelið, því næst er stutt helgistund með ritningarlestri, hugleiðingu og fyrirbæn.

Opið hús
er alla fimmtudaga frá kl. 12:00 til kl. 14:00 í Ási, efra safnaðarheimili kirkjunnar.
Dagskráin hefst með  léttum hádegisverði sem kostar kr. 1.500. Því næst er spil, spjall, prjónaskapur og gestir koma að jafnaði í heimsókn einu sinni  í mánuði og söngstund við píanóið með organista.
Allir velkomnir.

Leikskólinn Vinagarður er heimsóttur mánaðarlega, síðasta fimmtudag hvers mánaðar. Þar er sungið, dansað, hlustað á biblíusögu og brúður heilsa upp á börnin.

Þjónusta við heimili og stofnanir í Ássókn:

Áskirkja þjónar ýmsum stofnunum í sókninni með helgistundum, samverum og guðsþjónustum.
Á félagsmiðstöðvum aldraðra að Norðurbrún 1 og Dalbraut 27 eru samverur jafnan hálfsmánaðarlega og guðsþjónustur í umsjá prests og organista mánaðarlega.
Prestur annast vikulegar helgistundir og mánaðarlegar guðsþjónustur á hjúkrunarheimilinu Skjóli.  Barnastundir eru á leikskólanum Vinagarði.