Skírn

Í heilagri skírn er skírnþegi tekinn inn í kirkju Krists. Í hinni evangelisk – lúthersku kirkju, sem Þjóðkirkjan er hluti af, er algengast að barn sé skírt meðan það enn er ómálga. Barnið er helgað Guði með Orði hans og bæn og ausið vatni. Meginreglan er sú að barn sé skírt í kirkju og að viðstöddum söfnuði eða fulltrúum hans, en gömul hefð er fyrir því á Íslandi að skírn geti farið fram á heimili barnsins. Gömul hefð er einnig fyrir því að barnið sem skírt er sé fært í hvítan skírnarkjól. Kjóllinn er síður, sem táknar það að skírnarbarnið á að vaxa í trú, von og kærleika.

Aðstandendur velja barninu skírnarvotta. Skírnarvottar heita einnig guðfeðgin og eru þau aldrei færri en tvö, karl og kona (eins og felst í orðinu), en mest geta verið fimm. Æskilegt er að í það minnsta eitt guðfeðginana sé á þeim aldri að það geti fylgt barninu eftir til fullorðinsára. Foreldrar og guðfeðgin játa trúna fyrir hönd barns síns og skuldbinda sig þar með til að ala barnið upp í kristinni trú.

Þegar framkvæma á skírn þarf að ákveða með prestinum stund og stað. Ekki er tekin þóknun verði skírnin við hefðbundna guðsþjónustu.

Þóknun fyrir aukaverk presta s.s. skírn (í kirkju eða heimahúsi) er ákveðin af kjararáði.

Prestur Áskirkju er sr. Sigurður Jónsson.
prestur@askirkja.is

Skírnarfontur Áskirkju, skálin er eftir Georg Jensen.