HELGIHALD í ÁSSÓKN um jól og áramót 2022/2023

Fimmtudagur 22. desember 2022:         Jólaguðsþjónusta á Norðurbrún 1 kl. 14:00 í umsjá séra Sigurðar Jónssonar og Bjarts Loga Guðnasonar organista.

 

Aðfangadagur jóla, 24. desember 2022:       Aftansöngur í Áskirkju kl. 18:00.

Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sungnir Hátíðasöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar. Kór Áskirkju syngur. Einsöngur: Björn Ari Örvarsson. Einleikur á flautu: Berglind María Tómasdóttir. Organisti Bjartur Logi Guðnason.

 

Jóladagur, 25. desember 2022:     Hátíðarguðsþjónusta í Áskirkju kl. 14:00.

Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sungnir Hátíðasöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason.

 

Annar jóladagur, 26. desember 2022:   Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13:00.

Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Laugarási kl. 14:00.

Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari við báðar athafnirnar. Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið og félagar úr Kór Áskirkju syngja á báðum stöðum.

 

Föstudagur 30. desember 2022:   Jólaguðsþjónusta á Dalbraut 27 kl. 14:00 í umsjá séra Sigurðar Jónssonar og Bjarts Loga Guðnasonar organista.

 

Gamlárskvöld, 31. desember 2022:        Sameiginlegur aftansöngur Laugardalsprestakalls í Áskirkju kl. 18:00.

Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sungnir Hátíðasöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason.

 

Nýársdagur, 1. janúar 2023:     Sameiginleg nýársguðsþjónusta Laugardalsprestakalls í Laugarneskirkju kl. 16:00.

Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Laugarneskirkju syngur. Organisti Elísabet Þórðardóttir.

 

Fimmtudagur 5. janúar 2023:      Guðsþjónusta á Norðurbrún 1 kl. 14:00 í umsjá séra Sigurðar Jónssonar og Bjarts Loga Guðnasonar organista.

 

Fyrsti sunnudagur eftir þrettánda, 8. janúar 2023: Messa og fyrsti sunnudagaskóli nýs árs kl. 13:00. Emma Eyþórsdóttir og Þorsteinn Jónsson annast samverustund sunnudagaskólans. Séra Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti Bjartur Logi Guðnason. Hressing eftir messu í Ási.

 

Opið hús, starf eldri borgara í Ássókn og Laugarnessókn, hefur göngu sína á ný eftir jólahlé fimmtudaginn 19. janúar 2023 í Áskirkju og verður vikulega til vors.

 

Gleðileg jól!  Farsælt komandi ár!  Þökkum árið sem er að líða.

Prestur, sóknarnefnd og starfsfólk Áskirkju.