Fermingar í Áskirkju vorið 2021

 Skráning í fermingarfræðslu í Áskirkju veturinn 2020-2021 fer fram í kirkjunni fimmtudaginn 4. júní n.k. kl. 16-19 og föstudaginn 5. júní kl. 16-18.  Þar verður rætt um tilhögun fermingarstarfsins næsta vetur og hægt að velja fermingardag.

Fermingardagar í Áskirkju næsta vor verða sem hér segir:

Pálmasunnudagur, 28. mars 2021 kl. 14

Fyrsti sunnudagur eftir páska, 11. apríl 2021 kl. 14

Hvítasunnudagur, 23. maí 2021 kl. 11

Þau börn sem hafa hug á að fermast í Áskirkju vorið 2021, eru vinsamlegast beðin að koma í kirkjuna ásamt a.m.k. öðru foreldra sinna, annað hvort 4. júní eða 5. júní, eins og nefnt er hér að ofan, til að skrá sig í fermingarfræðsluna.

Ef þessi tími hentar ekki, bið ég ykkur að hringja í mig í síma 581 4035 eða 864 5135, – eða senda mér tölvupóst á netfangið soknarprestur@askirkja.is, – og við finnum annan tíma.

Sigurður Jónsson, sóknarprestur