Jólahlaðborð Safnaðarfélags Áskirkju

Okkar árlega jólahlaðborð Safnaðarfélags Áskirkju verður þann 23. nóvember 2023, salurinn opnar kl. 18. og borðhald hefst kl. 18:30.
Í boði verður:

  • Jólasíld og rúgbrauð

  • Hangikjöt, hamborgarahryggur, lambalæri, og meðlæti

  • Ís, ávextir og kransakökukonfekt

  • Gos, jólaöl og kaffi

Þau Ásgeir Páll og Guðrún Árný munu syngja okkur inn í jólahátíðina með sínum hætti. Skráning er hafin hjá kirkjuvörðum í síma 581-4035 og hjá Petreu í síma 891-8165. Miðaverð 6.500 kr., miðinn gildir í happdrætti.

Hlökkum til að sjá ykkur öll á þessu hátíðarkvöldi okkar.

Safnaðarfélag Áskirkju.