2. sunnudagur eftir páska, 5. maí 2019

Sunnudaginn 5. maí 2019, sem er 2. sunnudagur eftir páska, verður messa í Áskirkju kl. 11. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Kristnýju Rós Gústafsdóttur djákna. Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið. Hressing í Ási eftir messu.