Helgistund í Áskirkju á 4. sunnudegi eftir páska

Hér býðst að horfa á helgistund sunnudagsins 10. maí frá Áskirkju. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur flytur ritningarorð og hugvekju, Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni biður bæna, Jóhanna Ósk Valsdóttir syngur einsöng og Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið. Þetta verður síðasta streymis-helgistundin að sinni.
Sunnudaginn 17. maí kl. 11 verður fyrsta guðsþjónustan í Áskirkju eftir rýmkun samkomureglna. Aðalsafnaðarfundur Ássóknar 2020 verður haldinn í Ási, efra safnaðarheimili kirkjunnar að henni lokinni.