Helgihald um bænadaga og páska:

Skírdagur, 28. mars:  Sameiginleg messa Laugardalsprestakalls í Laugarneskirkju kl. 20:00.  Séra Hjalti Jón Sverrisson þjónar.  Kór Laugarneskirkju syngur.  Organisti Elísabet Þórðardóttir.

Föstudagurinn langi, 29. mars:  Sameiginleg guðsþjónusta Laugardalsprestakalls í Langholtskirkju kl. 11:00.  Séra Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar.  Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja.  Organisti Magnús Ragnarsson.

Páskadagur, 31. mars: Hátíðarguðsþjónusta í Áskirkju kl. 8:00. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti Bjartur Logi Guðnason. Páskamorgunverður í Ási í boði Safnaðarfélags Áskirkju að guðsþjónustu lokinni.
Sameiginleg barna- og fjölskylduguðsþjónusta Laugardalsprestakalls í veitingaskála Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal kl. 11:00.

Annar páskadagur, 1. apríl:
Guðsþjónusta á hjúkrunrheimilinu Skjóli kl. 13:00.
Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu Laugarási kl. 14:00.  Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari við báðar athafnirnar, félagar úr Kór Áskirkju syngja og organisti er Bjartur Logi Guðnason.

Gleðilega páska!