Aðalsafnaðarfundi Ássóknar 2021 er frestað um viku, til sunnudagsins 16. maí 2021

Aðalsafnaðarfundi Ássóknar 2021 sem vera átti í Ási strax að guðsþjónustu lokinni sunnudaginn 9. maí 2021 er frestað um viku af óviðráðanlegum orsökum.

Fundurinn verður haldinn í Ási, safnaðarheimili Áskirkju sunnudaginn 16. maí 2021, að lokinni guðsþjónustu sem hefst kl. 14:00. 

Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf.  Kosningar. Önnur mál. Kaffiveitingar.