14. sunnudagur eftir trínitatis, 13. september 2020:

Guðsþjónusta kl. 11.  Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Áskirkju syngur.  Organisti Bjartur Logi Guðnason.  Heitt á könnunni í Ási.  Fermingarbörn vorsins 2021 eru sérstaklega boðuð til guðsþjónustunnar ásamt foreldrum sínum eða forráðamönnum, og til kynningarfundar um fermingarstarfið í vetur, sem haldinn verður í kirkjunni strax að guðsþjónustu lokinni.  Vinsamlegast athugið að sunnudagaskólinn í Áskirkju hefst með fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 20. september n.k. kl. 11.