1. sunnudagur eftir þrettánda, 12. janúar 2020:

Messa og barnastarf kl. 11. Sunnudagaskólinn hefst á ný eftir jóla- og áramótahlé.  Jóhanna María Eyjólfsdóttir djáknakandidat annast samverustund hans ásamt Ingu Steinunni Henningsdóttur.  Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar við messuna og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Áskirkju leiða kirkjusönginn.  Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið.  Kaffisopi og safi eftir messu.