Lýðveldisdagurinn, 17. júní 2024:
Hátíðarguðsþjónusta undir berum himni á lýðveldisdaginn, 17. júní kl. 11:00, á íhugunarbrautinni við Rósagarðinn í Laugardal. Ekið að svæðinu frá Sunnuvegi um heimreið að gömlu gróðrarstöðinni. Séra Sigurður Jónsson annast prestsþjónustu. Kór Áskirkju syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar organista.
Allir velkomnir! Gleðilega hátíð!