Helgihald og önnur dagskrá í Ássókn í dymbilviku og um páska 2023:

Skírdagur, 6. apríl:

Guðsþjónusta á Skjóli kl. 13.

Guðsþjónusta á Hrafnistu, Laugarási kl. 14.

Við báðar athafnirnar þjónar séra Sigurður Jónsson, félagar úr Kór Áskirkju syngja, og organisti er Bjartur Logi Guðnason.

 

Föstudagurinn langi, 7. apríl:

Sameiginleg guðsþjónusta Laugardalsprestakalls í Áskirkju kl. 13.  Kór Áskirkju flytur Stabat mater eftir František Tůma undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar.  Píslarsagan samkvæmt Jóhannesarguðspjalli lesin.  Séra Sigurður Jónsson þjónar.

 

Páskadagur, 9. apríl:

Hátíðarguðsþjónusta í Áskirkju kl. 8 árdegis.  Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Áskirkju syngur.  Organisti Bjartur Logi Guðnason.  Páskadagsmorgunverður að guðsþjónustu lokinni í boði Safnaðarfélags Áskirkju í Ási, safnaðarheimili kirkjunnar.

Sameiginleg barna- og fjölskylduguðsþjónusta Laugardalsprestakalls kl. 11 á páskadag í skála Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal.  Umsjón með stundinni hafa séra Helga Kolbeinsdóttir og séra Sigurður Jónsson ásamt Emmu Eyþórsdóttur og Þorsteini Jónssyni, leiðtogum í barnastarfi Ás- og Laugarnessókna. Komið verður saman við selalaugina í húsadýragarðinum þar sem selirnir verða fóðraðir á páskasíldinni og þaðan haldið til samverustundarinnar í skálanum.

Gleðilega páska!