HELGIHALD í ÁSSÓKN um jól og áramót 2022/2023
Fimmtudagur 22. desember 2022: Jólaguðsþjónusta á Norðurbrún 1 kl. 14:00 í umsjá séra Sigurðar Jónssonar og Bjarts Loga Guðnasonar organista.
Aðfangadagur jóla, 24. desember 2022: Aftansöngur í Áskirkju kl. 18:00.
Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sungnir Hátíðasöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar. Kór Áskirkju syngur. Einsöngur: Björn Ari Örvarsson. Einleikur á flautu: Berglind María Tómasdóttir. Organisti Bjartur Logi Guðnason.
Jóladagur, 25. desember 2022: Hátíðarguðsþjónusta í Áskirkju kl. 14:00.
Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sungnir Hátíðasöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason.
Annar jóladagur, 26. desember 2022: Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13:00.
Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Laugarási kl. 14:00.
Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari við báðar athafnirnar. Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið og félagar úr Kór Áskirkju syngja á báðum stöðum.
Föstudagur 30. desember 2022: Jólaguðsþjónusta á Dalbraut 27 kl. 14:00 í umsjá séra Sigurðar Jónssonar og Bjarts Loga Guðnasonar organista.
Gamlárskvöld, 31. desember 2022: Sameiginlegur aftansöngur Laugardalsprestakalls í Áskirkju kl. 18:00.
Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sungnir Hátíðasöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason.
Nýársdagur, 1. janúar 2023: Sameiginleg nýársguðsþjónusta Laugardalsprestakalls í Laugarneskirkju kl. 16:00.
Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Laugarneskirkju syngur. Organisti Elísabet Þórðardóttir.
Fimmtudagur 5. janúar 2023: Guðsþjónusta á Norðurbrún 1 kl. 14:00 í umsjá séra Sigurðar Jónssonar og Bjarts Loga Guðnasonar organista.
Fyrsti sunnudagur eftir þrettánda, 8. janúar 2023: Messa og fyrsti sunnudagaskóli nýs árs kl. 13:00. Emma Eyþórsdóttir og Þorsteinn Jónsson annast samverustund sunnudagaskólans. Séra Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti Bjartur Logi Guðnason. Hressing eftir messu í Ási.
Opið hús, starf eldri borgara í Ássókn og Laugarnessókn, hefur göngu sína á ný eftir jólahlé fimmtudaginn 19. janúar 2023 í Áskirkju og verður vikulega til vors.
Gleðileg jól! Farsælt komandi ár! Þökkum árið sem er að líða.
Prestur, sóknarnefnd og starfsfólk Áskirkju.