3. sunnudagur eftir páska, 21. apríl 2025:
Messa og barnastarf kl. 13:00. Emma Eyþórsdóttir annast samverustund sunnudagaskólans. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Hressing að messu lokinni.
Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl kl. 11:00 verður fjölskylduguðsþjónusta í Áskirkju, sem markar lok barnastarfsins í vetur. Emma, Þorsteinn og Viktoría leiða stundina ásamt séra Sigurði. Pylsur á grilli að guðsþjónustu lokinni. Vinsamlega athugið messutímann kl. 11 í þetta sinn.