3. desember 2023 – fyrsti sunnudagur í aðventu:
Aðventusamkoma kl. 13:00. Ræðumaður Ragnheiður Sverrisdóttir djákni. Almennur söngur, auk þess sem Kór Áskirkju flytur aðventu- og jólatónlist undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar organista. Fermingarbörn flytja helgileik. Ljóðalestur. Heitt súkkulaði með rjóma og smákökur í boði sóknarnefndar að athöfn lokinni.