Fyrsti sunnudagur í föstu, 18. febrúar 2024:
Messa og barnastarf kl. 13:00. Þorsteinn Jónsson og Emma Eyþórsdóttir sjá um samverustund sunnudagaskólans. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason.
Vegna framkvæmda í eldhúsi safnaðarheimilis fellur messukaffið niður þennan sunnudaginn.