Áskirkja á aðventunni
Áskirkja er opin frá kl. 10 til 12 á sunnudögum og frá þriðjudegi til föstudags á aðventunni. Lokað er á mánudögum og laugardögum.
Þar gefst kostur á að kveikja á bænarljósi og setjast inn í ró og næði helgidómsins stundarkorn.
Prestur og djákni Áskirkju eru til viðtals eftir samkomulagi.
Sími Áskirkju er 588 8870.