Fréttir

16. sunnudagur eftir trinitatis, 2. október 2022

Messa og barnastarf kl. 13:00. Helga Kolbeinsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi eftir messu.

Guðspjall (Lúk 7.11-17)
Skömmu síðar bar svo við að Jesús hélt til borgar sem heitir Nain og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi. Þegar hann nálgaðist borgarhliðið þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni. Og er Drottinn sá hana kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana: „Grát þú eigi!“ Og hann gekk að og snart líkbörurnar en þeir sem báru námu staðar. Þá sagði hann: „Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!“ Hinn látni settist þá upp og tók að mæla og Jesús gaf hann móður hans.
En ótti greip alla og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: „Spámaður mikill er risinn upp meðal okkar,“ og „Guð hefur vitjað lýðs síns.“ Og þessi fregn um Jesú barst út um alla Júdeu og allt nágrennið.