Fréttir

Þriðji sunnudagur í föstu, 8. mars 2026: Messa og aðalsafnaðarfundur Ássóknar 2026.

Messa kl. 13:00. Séra Sigurður Jónsson þjónar fyrir altari. Þorgils Hlynur Þorbergsson, cand. theol., prédikar. Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Organisti Bjartur Logi Guðnason.

Aðalsafnaðarfundur Ássóknar 2026 verður haldinn í Ási, safnaðarheimili kirkjunnar strax að messu lokinni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Kaffiveitingar.

Sóknarnefnd Ássóknar.