Sunnudagur 15. júní 2025, þrenningarhátíð – og þjóðhátíðardagurinn 17. júní 2025:
Sumarmessa kl. 11:00. Athugið sumarmessutímann! Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason.
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2025 kl. 11:00 verður hátíðarguðsþjónusta undir berum himni á íhugunarbrautinni við Rósagarðinn í Laugardal. Séra Sigurður Jónsson þjónar og Kór Áskirkju syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar. Greið gönguleið vestanmegin að messustaðnum frá Sunnuvegi um heimreið að gömlu gróðrarstöðinni, og austanmegin frá leikskólanum Vinagarði eftir gangstíg við bílastæði skólans.