Safnaðarsalir & útleiga
Kirkjan:
Hið þríhyrnda byggingaform Áskirkju er vel þekkt enda sést hún víða að úr borginni. Staðsetning hennar er með því besta sem gerist miðsvæðis í Reykjavík þar sem hana ber hátt yfir Laugardalinn með glæsilegu útsýni og ofan við hana er Laugarás friðlýst náttúruvætti. Kirkjan sjálf er hlýleg að innan og margir hafa nefnt það meðal kosta hennar hversu vel hún nær að halda utan um kirkjugesti sína. Lofthæð kirkjunnar er mikil og aflíðandi með einfaldri en samt glæsilegri lýsingu sem minnir á stjörnur. Hljómburður hefur reynst góður í byggingunni og því er kirkjan alloft leigð út fyrir tónleika. Kirkjuskipið tekur um 295 manns í sæti þar af um 30 á kórsvölum. Einnig er möguleiki á að opna kirkjuskipið inní safnaðarsalinn Ás (felliveggur) vegna fjölmennari athafna. Fallegt umhverfi kirkjunnar er gjarnan notað til myndatöku samhliða veislum og athöfnum. Mikið er af bílastæðum en einnig gengur vagn 14 rétt fyrir utan.
Safnaðarsalir:
Stærri safnaðarsalur Áskirkju, Ás tekur allt að 160 manns í sæti eða um 300 manns í standandi boð og er hann á tveimur pöllum. Flygill og hljóðkerfi. Móttökueldhús, borðbúnaðar-og dúkaleiga. Salurinn Ás er á sömu hæð og kirkjuskipið sjálft. Lofthæð salarins er mikil og aflíðandi með einfaldri en samt glæsilegri lýsingu sem minnir á stjörnur. Loftlýsingin er eins og er í kirkjunni. Sérlega háir gluggar. Stórt andyri með fatahengjum á tveimur stöðum ásamt salernum. Gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða í salinn.
Hinn minni sem nefndur hefur verið Dalur er á neðri hæð kirkjunnar og tekur fulldekkaður um 80 manns í sæti. Þessi salur hefur fallega stóra glugga til tveggja átta sem bjóða uppá stórkostlegt útsýni og sjónræn tengsl við Laugardalinn og miðborgina. Gott aðgengi er að salnum.
Safnaðarsalirnir eru leigðir út fyrir t.d. fundi, erfisdrykkjur, brúðkaups-, skírnar-, fermingar- og afmælisveislur samkvæmt sérstökum reglum þar um. Mjög hófleg meðferð léttra vína og bjórs er möguleg í veislum í safnaðarheimilinu. Veislum þarf að vera lokið um miðnætti. Reykingar eru bannaðar í húsinu.
Nánari upplýsingar um útleigu:
Berglind Ragnarsdóttir kirkjuvörður í síma 588-8870 á opnunartíma kirkjunnar eða með tölvupósti,
Veisluhald safnaðarsala er í höndum Petreu Aðalheiðar Ómarsdóttur, húsmóður safnaðarheimilis, í farsíma 891-8165.