Opið hús- Bleikur dagur
Í Opna húsinu, næstkomandi fimmtudag, höldum við bleika daginn hátíðlegan með því að klæðast bleiku eða vera með eitthvað bleikt á okkur. Þetta gerum við til að sýna konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning. Samkvæmt litafræðum táknar bleikur litur umhyggju, eflir hamingju og ýtir undir kærleiksrík sambönd. Og það er einmitt það sem er gert alla fimmtudaga í Opna húsinu í Áskirkju!
Gestur okkar á fimmtudaginn verður Laufey Geirlaugsdóttir, söngkona, og mun hún ásamt henni Önnu Siggu okkar taka lagið okkur til gleði og ánægju.
Sjáumst bleik á fimmtudaginn;)