Ferming

Ferming þýðir staðfesting.

Í fermingunni staðfestir barnið skuldbindingu foreldra og guðfeðgina í skírnarathöfninni. Það fer með trúarjátninguna, vinnur fermingarheit og þiggur fyrirbæn og blessun. Fermt er við messu. Til þess að mega fermast stundar fermingarbarnið sérstakt nám í kristnum fræðum hjá presti sínum eða fermingarfræðara, sem kallast fermingarfræðsla.

Fermingarfræðsla í Áskirkju veturinn 2025-2026 verður á miðvikudögum (nánari tímasetning væntanleg) frá miðjum september til marsloka. Séra Sigurður Jónsson fræðir börnin. Sími hans er 864 5135 og netfang prestur@askirkja.is.

Fermingardagar í Áskirkju 2026:
Pálmasunnudagur, 29. mars 2026 kl. 13:00.
Fyrsti sunnudagur eftir páska, 12. apríl 2026 kl. 13:00.
Hvítasunnudagur, 24. maí 2026 kl. 13:00.
 

Slóðin á rafræna skráningu í fermingarfræðslu í Áskirkju veturinn 2025-2026 er hér að neðan: