14. sunnudagur eftir trínitatis, 6. september 2026:
Messa kl. 13:00. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Fermingarbörn næsta vors eru sérstaklega boðuð til messunnar ásamt foreldrum sínum og forráðamönnum, og verður stuttur kynningarfundur um fermingarstarfið í vetur haldinn í messulok. Hressing í Ási eftir messu.
