Fréttir

Helgihald í Ássókn um jól og áramót 2025:

Aðfangadagur jóla, 24. desember 2025:

Aftansöngur í Áskirkju kl. 18:00.  Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Áskirkju syngur.  Einsöngur: Berta Dröfn Ómarsdóttir.  Trompetleikur: Friðrik Valur Bjartsson.  Organisti Bjartur Logi Guðnason.

Jóladagur, 25. desember 2025: 

Hátíðarguðsþjónusta í Áskirkju kl. 14:00.  Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Áskirkju syngur.  Organisti Bjartur Logi Guðnason.

Annar jóladagur, 26. desember 2025:

Hátíðarguðsþjónusta á sal á 2. hæð á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13:00.

Hátíðarguðsþjónusta á Helgafelli, Hrafnistu, Laugarási, kl. 14:00.

Við báðar athafnirnar þjónar séra Sigurður Jónsson fyrir altari og prédikar, félagar úr Kór Áskirkju syngja, Dagmar Helga Bjartsdóttir leikur á fiðlu og organisti er Bjartur Logi Guðnason.

Sunnudagur milli jóla og nýárs, 28. desember 2025:

Lesmessa og orgeltónar í Áskirkju kl. 13:00.  Séra Sigurður Jónsson þjónar.  Organisti Bjartur Logi Guðnason.

Gamlársdagur, 31. desember 2025:

Aftansöngur í Áskirkju kl. 18:00.  Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Áskirkju syngur.  Organisti Bjartur Logi Guðnason.

Nýársdagur, 1. janúar 2026:

Sameiginleg hátíðarguðsþjónusta fyrir Laugardalsprestakall í Laugarneskirkju kl. 16:00.  Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Laugarneskirkju syngur. Einsöngur: Ingunn Sigurðardóttir.  Organisti Elísabet Þórðardóttir.

Gleðileg jól!  Gæfuríkt komandi ár!