Salarleiga
Hjá Áskirkju við Vesturbrún 30 í Reykjavík eru tveir safnaðarsalir til útleigu auk kirkjuskips. Salir leigjast með eða án veitinga. Góð aðkoma og næg bílastæði eru við kirkjuna. Áskirkja leigir borðbúnað og dúka fyrir salina. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla í salina. Bókanir og nánari upplýsingar um útleigu gefa kirkjuverðir á opnunartíma kirkjunnar, í síma 588-8870 eða netfang askirkja@askirkja.is. Veisluhald safnaðarsala er í höndum Petreu Aðalheiðar Ómarsdóttur, húsmóður safnaðarheimilis, í farsíma 891-8165.
Safnaðarsalirnir eru leigðir út fyrir fundi, erfidrykkjur, brúðkaups-, skírnar-, fermingar- og afmælisveislur samkvæmt sérstökum reglum þar um. Mjög hófleg meðferð léttra vína og bjórs er möguleg í veislum í safnaðarheimilinu. Veislum þarf að vera lokið um miðnætti. Reykingar eru bannaðar í húsinu.
Efri salur
Ás tekur allt að 160 manns í sæti eða um 300 manns í standandi boði og er hann á tveimur pöllum og nýtist pallurinn sem svið. Flygill og hljóðkerfi er í salnum. Móttökueldhús, borðbúnaðar-og dúkaleiga á staðnum.
Neðri salur
Dalur er á neðri hæð kirkjunnar og tekur fulldekkaður um 80 manns í sæti. Útsýni er yfir Laugardalinn og bílastæði við sérinngang.
Kirkjuskip
Kirkjuskipið tekur um 295 manns í sæti þar af um 30 á kórsvölum. Einnig er möguleiki á að opna kirkjuskipið inní safnaðarsalinn Ás vegna fjölmennari athafna.
Ítarlegri upplýsingar um salina má finna hér á vefnum.
Myndir frá sölum Áskirkju:










