Fréttir

3. sunnudagur eftir trínitatis, 7. júlí 2019

Sumarferð Safnaðarfélags Ásprestakalls í Borgarfjörð.

Ferðalangar taka þátt í messu í Reykholtskirkju kl. 14 þar sem séra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti þjónar fyrir altari ásamt Kristnýju Rós Gústafsdóttur, djákna Ássafnaðar, og séra Sigurður Jónsson sóknarprestur Ásprestakalls prédikar.

Messa í Áskirkju fellur niður þennan sunnudag af þessum sökum.

Áskirkja verður lokuð vegna sumarleyfa sóknarprests og starfsfólks frá 8. júlí til 19. ágúst, og liggur helgihald kirkjunnar niðri á meðan. Afleysingaþjónusta er sem hér segir:

8.-24. júlí: Séra Eva Björk Valdimarsdóttir, héraðsprestur, sími 822 3832.

25.-31. júlí: Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir, héraðsprestur, sími 869 9659.

1.-19. ágúst: Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur, sími 898 6302.