Fréttir

Opið hús- haustferð 10.10.2024

Kæru vinir Opna Hússins,

Fimmtudaginn 10. október ætlum við að skella okkur saman í haustferð. Við hittumst kl. 11.30 í Áskirkju, sameinumst í bíla og brunum sem leið liggur upp í Hjallakirkju í Kópavogi þar sem við gerum stutt stopp. Síðan liggur leið okkar í Gerðarsafn, þar sem við munum njóta listar og menningar. Við fáum leiðsögn um safnið en síðast en ekki síst munum við gæða okkur á gómsætum og staðgóðum veitingum á kaffihúsi Gerðarsafns.

Kær kveðja Áskirkjufólk