3. sunnudagur í föstu, 3. mars 2024:
Messa og barnastarf kl. 13:00.
Séra Hjalti Jón Sverrisson prédikar og þjónar fyrir altari. Anna Sigríður Helgadóttir syngur sálma eftir séra Hallgrím Pétursson við lög Sigurðar Sævarssonar. Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið.
Hressing að messu lokinni.
Aðalsafnaðarfundur Ássóknar 2024
Aðalsafnaðarfundur Ássóknar 2024 verður haldinn sunnudaginn 10. mars 2024. Fundurinn hefst kl. 14 að lokinni messu og verður haldinn í Ási, safnaðarheimili Áskirkju, Vesturbrún 30.
Dagskrá: Venjuleg aðalsafnaðarfundarstörf. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Sóknarnefnd Ássóknar