ÁSKIRKJA

Fermingar og fermingarfræðsla

Fræðslu- og fermingarreiturinn

Hér að neðan er að finna upplýsingar er varða fermingar og fermingarfræðslu. Unglingar og foreldrar þeirra eru hvött til að nýta sér þær upplýsingar sem hér er að finna.

 

 

Fermingin

Vertu trú(r) allt til dauða, og ég mun gefa þér kórónu lífsins. Opb.2.10c.

Ferming þýðir staðfesting. Í fermingunni staðfestir barnið skuldbindingu foreldra og guðfeðgina í skírnarathöfninni. Það fer með trúarjátninguna, vinnur fermingarheit og þiggur fyrirbæn og blessun. Fermt er við messu. Til þess að öðlast rétt til að mega fermast stundar fermingarbarnið sérstakt nám í kristnum fræðum hjá presti sínum eða fermingarfræðara, sem kallast fermingarfræðsla. Heimild er fyrir því að barn megi ganga til altaris með foreldrum sínum frá unga aldri, en meginreglan er þó sú að við ferminguna eða á meðan fermingarfræðslan stendur yfir, neyti barn í fyrsta sinn kvöldmáltíðarsakramentisins. (Sjá nánar kaflann um messuna.)

,,Berstu trúarinnar góðu baráttu, höndla þú eilífa lífið, sem þú varst kallaður til og þú játaðist með góðu játningunni í viðurvist margra votta I.Tm 6.12

 

 

Fermingarfræðslan veturinn 2010-2011 fer fram í neðra safnaðarheimili Áskirkju á miðvikudögum,

frá kl. 15:30 til 16:15

Fermingarfræðslan hefst miðvikudaginn 15. september.

 

Starfsáætlun fermingarbarna 2010 til 2011

(Birt með fyrirvara um breytingar.)

Haustönn 2010:

Sunnudagur 12. september  - Messa kl. 11 – kynningarfundur um fermingarstarf vetrarins.
15.9.    - Kynning á kirkjuhúsinu og starfsfólki Áskirkju
22.9.    - Messuformið. Signingin.
29.9.    - Sálmabókin. Borðbæn.
6.10.    - Heilög þrenning. Trúarjátningin.
Sunnudagur 10. október        - Fyrra kirkjukaffi fermingarbarna
13.10.  - Bænin. Faðir vor.
20.10.  - Gamla testamentið, sköpunarsagan. Tvöfalda kærleiksboðorðið.
27.10.  - Gamla testamentið. Boðorðin tíu.
3.11.    - Söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.
10.11. - Gamla testamentið, Davíðssálmarnir.
17.11.  - Æfing fyrir helgileik
24.11.  - Æfing fyrir helgileik
Laugardagur 10. desember - Aðventukvöld í Áskirkju kl. 20. Helgileikur
1.12.    - Jólasálmar
8.12. -Síðasta samvera fyrir jól. Jesúbíó.

Vorönn 2011:
12.1.    - Ellin. Hvernig mun ég sjá líf mitt þegar ég verð gömul /gamall?
19.1.    - Heimsókn til eldra fólks á Dalbraut 27 og Norðurbrún 1 og tekin viðtöl.
26.1.    - Viðtölum skilað og sagt frá heimsókninni.
2.2.      - Jesús Kristur, sannur Guð og sannur maður.
9.2.      - Kenning Jesú, Fjallræðan. Gullna reglan.
Sunnudagur 13. febrúar - Síðara kirkjukaffi fermingarbarna.
16.2.    - Kenning Jesú, Fjallræðan.
23.2.    - Dymbilvika og páskar. Upprisa Krists.
2.3.      - Heilagt sakramenti: Skírnin. Skírnarskipunin.
9.3.      - Heilagt sakramenti: Kvöldmáltíðin.
16.3.    - Fermingin, staðfesting skírnarinnar.
Sunnudagur 20. mars - Fundur e. messu m. börnum og foreldrum um ferminguna framundan.
23.3.    - Fermingin, fjölskylduhátíð og góðar gjafir.
30.3.    - Tímaritgerð um ferminguna.
6.4.      - Jesúbíó.
13.4.    - Ferðalag að Skálholti og Sólheimum.

 

Fermingar í Áskirkju, vorið 2011

17. apríl Pálmasunnudagur, kl. 11:00.

25. apríl, Annar í páskum, kl. 11:00.

1. maí, fyrsti sunnudagur eftir páska, 11:00.

12. júní Hvítasunnudagur, kl. 11:00 .

 

 

Biblíuafhending.

Sunnudaginn 11. nóvember færði Safnaðarfélag Ásprestakalls þeim fermingarbörnum sem fermast eiga vorið 2008 hina nýju útgáfu af Biblíunni að gjöf. Afhendingin fór fram í kaffisamsæti í safnaðarheimili kirkjunnar að aflokinni messu sem fermingarbörnin tóku virkan þátt í. Jafnframt sáu börnin um bakstur á því meðlæti sem fram var borið. Ekki leikur vafi á að gjöf þessi mun nýtast börnunum við fermingarundirbúninginn og sem traustur förunautur inn í framtíðina.

 

Skálholtsferð fermingarbarna 27. febrúar 2008

Senn líður að lokum fermingarundirbúningsins þennan veturinn, enda fermingar á næsta leiti. Fermingarbörnin ásamt séra Sigurði brugðu sér austur í Skálholt miðvikudaginn 27. febrúar, og heilsaði Suðurland hópnum með sínu fegursta vetrarskarti; alhvítri jörð undir heiðbláum himni, logni og skæru sólskini. Í Skálholti var brugðið á leik utan dyra og inni, sagan kunna af miskunnsama Samverjanum færð í leikrænan búning, gluggað í Heilaga Ritningu og rifjað upp hvernig númeruð ritningarversin leynast innan um textann í köflum hvers rits. Þá fræddust börnin um sögu hins forna biskupsseturs, skoðuðu Skálholtsdómkirkju og kjallara hennar, þar sem m.a. gefur að líta hina merku steinþró Páls biskups Jónssonar. Undir kvöld hélt hópurinn síðan sæll og glaður til síns heima.


 

 

| Senda kirkjuverði skeyti | ©2005 Áskirkja