ÁSKIRKJA

Andlát og jarðarfarir

Kæru vinir

Hér að neðan er fjallað stuttlega um þá útfararsiði sem tíðkast meðal kristinna manna á Íslandi.

Jafnframt er hér að finna stutt æviágrip tveggja látinna sóknarpresta sem þjónað hafa Ásprestakalli.

Útför

Jesús sagði: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja." Jh.11.26.

Þegar einhver úr söfnuðinum deyr þá fer fram útfararathöfn, venjulega í kirkju, og síðan greftrun í kirkjugarði. Undanfari hennar er kistulagning sem er bænastund með aðstandendum þegar hinn látni hefur verið lagður í kistuna, og áður en kistunni er lokað. Þessi bænastund er alltaf haldin og einnig þegar fram fer bænastund með ástvinum við andlátið sjálft eins og eðlilegt er.

,,Moldin hverfur aftur til jarðarinnar, þar sem hún áður var, en andinn til Guðs, sem gaf hann." Pd.12.7

Einkenni útfararathafnarinnar er hin kristna von um upprisu og eilíft líf. Jesús Kristur frelsar frá dauðanum. Í trú á hann leggjum við þau sem við kveðjum í vígða mold. Grafreitir og kirkjugarðar eru sérstaklega helgaðir í þessu skyni, nema þeir reitir sem ætlaðir eru fyrir þau sem eru utan kirkju eða tilheyra öðrum trúarsamfélögum.

Oftast eru þau sem deyja jarðsett í venjulegri kistu, en ef líkbrennsla hefur farið fram að lokinni útfararathöfninni þá er duftkerið jarðsett. Í flestum kirkjugörðum er minnismerki eða reitur vegna þeirra sem drukkna og finnast ekki, eða týnast með öðrum hætti. Þá er haldin minningarathöfn í kirkjunni, en blómsveigur lagður við minnismerkið.

,,Ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfirstandandi, né hið ókomna, hvorki kraftar hæð né dýpt, né nokkuð annað skapað muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum.” Rm.8.38-39.

 

GRÍMUR GRÍMSSON, sóknarprestur frá 1964 til 1980.

Séra Grímur var fæddur í Reykjavík 21. apríl 1912. Foreldrar hans voru Grímur Jónas Jónsson cand. theol., skólastjóri á Ísafirði og Kristín Kristjana Eiríksdóttir. Grímur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1933. Í framhaldi af stúdentsprófiu fór hann til verslunarnáms við Niels Brocks Handelsskole í Kaupmannahöfn 1934-35. Guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands lauk Grímur árið 1954.

Á árabilinu frá 1937 til 1954 var Grímur ritari og fulltrúi við Tollstjóraembættið í Reykjavík. Árið 1954 var hann skipaður sóknarprestur i Sauðlauksdal í Barðastrandarprófastsdæmi og þjónaði jafnframt Brjánslækjarprestakalli um árabil. Árið 1964 var hann skipaður fyrsti sóknarprestur hins nýstofnaða Ásprestakalls í Reykjavík og þjónaði hann því prestakalli til ársins 1980, eftir það var hann settur sóknarprestur í Staðarprestakalli í Súgandafirði.

Grímur sat í stjórn Prestafélags Íslands frá 1966-78 og var formaður þess í nokkur ár. Jafnframt var hann fyrsti framkvæmdastjóri Ræktunarsambands V-Barðastrandarsýslu.

Grímur kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu Sigríði Jónsdóttur, árið 1939 og eignuðust þau þrjú börn.

Sr.Grímur andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir 24. janúar 2002 og var jarðsunginn frá Áskirkju 1. febrúar.

Blessuð sé minning séra Gríms Grímssonar.

ÁRNI BERGUR SIGURBJÖRNSSON , sóknarprestur frá 1980 til 2005.

Mynd úr gagnasafni Morgunblaðsins

Séra Árni Bergur fæddist á Breiðabólsstað á Skógarströnd 24. janúar 1941. Foreldrar hans eru Sigurbjörn Einarsson, biskup og kona hans Magnea Þorkelsdóttir. Árni Bergur ólst upp í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1968 og embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1972. Hann sótti námskeið í biblíuþýðingum í Halle í Þýskalandi árið1971, stundaði nám við San Francisco Theological Seminary árið 1978 og framhaldsnám í nýjatestamentisfræðum við Lundarháskóla 1978-1980.

Hann var sóknarprestur í Ólafsvík 1972-1980 og í Ásprestakalli í Reykjavík frá 1980 og þar til hann lést. Áður en hann lauk námi vann hann við barnakennslu og skrifstofustörf á Bíldudal og var fulltrúi á Skrifstofu ríkisspítalanna. Meðfram prestsstörfum var hann stundakennari í biblíufræðum við guðfræðideild Háskóla Íslands frá 1982 og í grísku og nýjatestamentisfræðum við guðfræðideildina frá 1977 og í gamlatestamentisfræðum og kirkjusögu frá 1990. Hann sat í þýðingarnefnd Gamla testamentisins frá 1990 og þýðingarnefnd Nýja testamentisins frá 2001. Hann átti sæti í stjórn Hins íslenska Biblíufélags frá 1981, sat í kjaranefnd Prestafélags Íslands um tíma og átti sæti í framkvæmdanefnd Hjálparstofnunar kirkjunnar. Hann sat í skólanefnd Grunnskóla Ólafsvíkur 1974-1980 og í skólanefnd Kvennaskólans í Reykjavík 1982-1988.

Hann þýddi Apókrýfar bækur Gamla testamentisins úr frummálinu 1994 og skrifaði inngang og skýringar. Eftir hann liggja einnig ýmsar greinar og ritgerðir í bókum, tímaritum og blöðum.

Árni Bergur kvæntist Lilju Garðarsdóttur frá Bíldudal árið 1965 og eignuðust þau þrjú börn, Hörpu, myndlistarmann f. 1965, Magneu, MM flautuleikara og tónlistarkennara f. 1969 og Garðar, flugmann f. 1975.

Sr. Árni Bergur andaðist á Landspítalanum í Fossvogi hinn 17. september 2005 og var jarðsunginn frá Áskirkju laugardaginn 24. september. Lilja eiginkona hans andaðist á líknardeild Landspítalans 25. janúar 2007 og var jarðsungin frá Áskirkju 2. febrúar.

Blessuð sé minning Séra Árna Bergs Sigurbjörnssonar og Lilju Garðarsdóttur.

 

| Senda kirkjuverði skeyti | ©2005 Áskirkja